Leikur tveimur skjöldum Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 21. apríl 2013 14:45
Oblivion. Leikstjórn: Joseph Kosinski. Leikarar: Tom Cruise, Olga Kurylenko, Andrea Riseborough, Morgan Freeman. Við skulum sjá hvort mér takist að staulast í gegn um þennan stutta pistil án þess að minnast einu orði á Ísland, og án þess að nota frasann „sannkölluð veisla fyrir augað“. Oblivion leikur tveimur skjöldum. Hún reynir í hægagangi sínum og dulúð að höfða til spekinga hvers trúarbrögð eru 2001: A Space Odyssey og Solaris, en þess á milli er Tom Cruise snaróður í geimskipi sínu að skjóta niður óvinaflaugar rétt eins og R2D2 sæti aftur í. Mér finnst þessi samsuða skemmtileg, og myndinni tekst að vera „bæði og“ frekar en „hvorki né“. Sagan sjálf er skemmtileg þó ekki fari mikið fyrir frumleikanum. Cruise fer vel með hlutverk sitt, en oft hefur nú gustað meira af honum. Sama má segja um Morgan Freeman. Skærustu stjörnur myndarinnar eru þó sviðsmyndin og stemningin. Hljómsveitin M83 sér um seiðandi tónlistina og gefur hún myndinni sérstakan blæ. Íslenska landslagið nýtur sín afar vel og eftir nokkrar mínútur hafði ég aftengt við gamla Frón og gleymt mér í hrörlegu ástandi jarðarinnar árið 2077. Ekki skemmir glæsileg myndatakan, sem gerir myndina að sannkallaðri veislu fyrir augað. Niðurstaða: Oblivion stendur vissulega á öxlum forfeðra sinna, en hún gerir það bara svo vel.
Gagnrýni Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira