Stóð fylkisstjórann að ofsaakstri og var rekinn Finnur Thorlacius skrifar 18. júlí 2013 13:30 Fylkisstjóri Iowa er stundum að flýta sér og það kemur lögreglunni ekki við.
Það er greinilega vandasamt verk að vera lögreglumaður í Iowa fylki í Bandaríkjunum og eins gott að gera mannamun þó vafalaust sé annað kennt í lögregluskólanum þar. Lögreglumaður til 25 ára stóð fylkisstjórann að akstri á 145 km hraða á bíl í eigu hins opinbera. Hann stöðvaði ekki bílinn en lét yfirmenn sína vita af ofsaakstri fylkisstjórans. Fljótlega eftir það var hann sendur í launað frí og tveimur mánuðum síðar var hann rekinn. Ástæða brottvikningingarinnar átti að vera sú að hann hafi notað bifreið í eigu ríkisins utan vinnutíma. Það vita það flestir að sú skýring er einungis yfirskyn og hin raunverulega ástæða er sú að hann klagaði fylkisstjórann fyrir lögbrot. Það er greinilega bannað í þessu ríki og hagsmunir þess háttsetta settir ofar en óbreytts lögreglumanns. Lögreglumaðurinn hefur leitað réttar síns og fengið til liðs við sig lögmann, svo mögulega er málið ekki til lykta leitt.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent