Kynna leyndardóma Þingvallavatns 23. apríl 2013 13:21 Veiðimenn í Þingvallavatni.
Það styttist óðum í opnun Þingvallavatns. Af því tilefni verður Stangaveiðifélag Reykjavíkur með kynningu á leyndardómum þessa magnaða veiðivatns. Kynningin fer fram í húsakynnum Stangaveiðifélagsins í Elliðaárdal, nánar tiltekið við Rafstöðvarveg 14, og hefst hún klukkan 19.30 á morgun. Veiði í Þingvallavatni hefst þann 1. maí. Á Facebook-síðu SVFR segir að Einar Guðnason, hjá Fluguveiðiskólanum Veiðiheimi, mun fara yfir veiðisvæði og kynna veiðiaðferðir sem dugi. Einar mun einnig kynna þær flugur sem hafa reynst hvað best, fara yfir það hversu langan taum veiðimenn eigi að nota og sýna hvernig gott er að haga veiðum miðað við mismunandi aðstæður.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Skemmtileg og fræðandi veiðibók Veiði Metsumar í vændum í Svalbarðsá? Veiði Veiddi 34 punda lax við Tannastaði Veiði Mikið líf við Elliðavatn Veiði Mikið líf í Elliðavatni um helgina Veiði Ný glær flotlína frá Airflo Veiði Hafralónsá komin til Hreggnasa Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Tiltektardagur við Varmá á morgun og veiðileyfi í boði Veiði Tók tvo 102 sm hænga úr sama hylnum Veiði