Stubbur á kodda 22. apríl 2012 13:00 Ragnhildur Anna Jónsdóttir. „
Ég var búin að velta því lengi fyrir mér hvernig best væri að nálgast Stubb. Mig langaði að gera það af alúð enda hefur Stubbur fylgt íslenskum börnum kynslóð fram af kynslóð en bókin var fyrst gefin út 1947," segir Ragnhildur Anna en hún hefur unnið ver utan um svæfil með myndum úr sögunni um Stubb. „Mig langaði að tengja bókina samveru og hvíld en sjaldan er meiri nánd eða kyrrð en þegar lesið er fyrir börn. Ég fékk góðfúslegt leyfi hjá Bókaútgáfunni Björk sem gefur út Stubb og útkoman varð gjafapakkning með veri, 40x45 sentimetrar að stærð, ásamt bókinni góðu," segir Ragnhildur. Verin eru saumuð á Vinnustofunni Ási en þar eru einnig framleiddir gjafapokar utan um barnasamfellur fyrir Jónsdóttir & co. „Þar sem oft er hvatt til að gefa börnum bækur á sumardaginn fyrsta langaði mig að hafa verkið tilbúið á þeim tíma. Það hefði hins vegar aldrei tekist nema vegna einstakrar samvinnu við Vinnustofuna Ás," segir Ragnhildur.Verinu utan um svæfilinn fylgir einnig bókin um Stubb.Gjafapakkningin með Stubbi er til sölu í Safnabúð Þjóðminjasafsins, Minju á Skólavörðustíg og gegnum heimasíðuna jonsdottir.is og nýlega bættist verslunin Sirka á Akureyri í hóp verslana sem selja vörur Ragnhildar. „Reyndar gerði ég einnig stuttermabol með Stubbi því myndin af honum er svo falleg í einfaldleika sínum. Bolurinn er hins vegar eingöngu seldur hjá mér. Vinnan við Stubb var skemmtileg og það má vel vera að það verði framhald eftir vinnuna með Stubb og önnur yndisleg barnabókahetja bætist í safnið." -rat
Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið „Hún sagði já“ Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Fleiri fréttir Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira