Mtiliga rekinn út úr danska klefanum - neitaði að spila Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. október 2012 13:45 Patrick Mtiliga. Mynd/Nordic Photos/Getty
Morten Olsen, þjálfari danska landsliðsins, rak einn leikmann sinn út úr búningsklefanum fyrir landsleik Dana og Ítala í Mílanó í gær og ætlar aldrei að velja leikmanninn aftur í landsliðið. Morten Olsen var búinn að velja byrjunarliðið sitt þegar í ljós kom að Simon Poulsen gat ekki spilað vegna meiðsla. Patrick Mtiliga var hinsvegar í fýlu af því að Poulsen var upphaflega valinn frekar en hann og neitaði að spila þegar Olsen leitaði til hans. „Það kemur fyrir að leikmenn séu ósáttir en þeir þurfa þá bara að sanna sig inn á vellinum. Ég hef aldrei kynnst öðru eins á mínum 40 árum í fótboltanum," sagði Morten Olsen við Ekstra Bladet. „Ég bað hann umsvifalaust um að yfirgefa búningsklefann því hann var búinn að svíkja sína samspilara. Það er öruggt að hann hefur spilað sinn síðasta landsleik," sagði Olsen. Michael Silberbauer kom inn í stöðu hægri bakvarðar í stað Simon Poulsen (og Patrick Mtiliga) en Danirnir töpuðu 1-3 fyrir Ítölum í þessum leik og hafa aðeins fengið tvö stig í fyrstu þremur leikjum sínum í riðlinum. Dönsku blaðamennirnir fengu ekki viðtal við Patrick Mtiliga því hann strunsaði í burtu án þess að gefa færi á svara spurningum. Patrick Mtiliga er 31 árs gamall vinstri bakvörður sem spilað með FC Nordsjælland. Hann var líka í fréttum eftir leikinn við Búlgaríu því þá var hann fórnarlamb kynþáttafordóma úr stúkunni.
HM 2014 í Brasilíu Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Fleiri fréttir „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Sjá meira