Mikilvægt að hlúa að dýrmætustu eign hvers fyrirtækis 23. ágúst 2012 13:00 ''Stjórnendur sjá hag sinn í því að kaupa reynslu okkar og þekkingu'', segir Marín Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri Practical.
Practical hefur frá upphafi verið leiðandi þegar kemur að starfs- og hvatadögum fyrir íslensk fyrirtæki auk þess sem Practical þjónustar erlenda hvataferðahópa sem koma til Íslands. Marín Magnúsdóttir segir að nútímastjórnendur geri sér almennt grein fyrir mikilvægi þess að efla mannauðinn enda sýni rannsóknir fram á að metnaðarfull mannauðsstefna auki afköst starfsmanna, minnki starfsmannaveltu og auki starfsánægju. Það er því til mikils að vinna enda flestir sammála um að mannauðurinn sé dýrmætasta eign hvers fyrirtækis. Marín segir að algengt sé að einu sinni til tvisvar á ári fari minni einingar fyrirtækja í sameiginlegar ferðir þar sem gjarnan er blandað saman fjöri og fróðleik. Þá er átt við deildir eða svið sem vinna daglega saman. Að auki eru starfsdagar fyrirtækja að festa sig í sessi hér á landi og samkvæmt Marín gegna þeir mikilvægu hlutverki jafnt fyrir starfsmenn sem og stjórnendur fyrirtækja. Marín segir að umfang verkefna sé mjög mismunandi. Practical þjónusti stefnumótunarferðir stjórnenda til jafns við stóra starfsdaga, óvissuferðir eða stærri viðburði. Hún segir að á síðustu tólf mánuðum hafi ríflega 13.000 gestir sótt viðburði Practical og að viðskiptavinum fyrirtækisins hafi fjölgað jafnt og þétt síðastliðin ár. Marín telur að ástæðu þess megi meðal annars rekja til þess að innan fyrirtækja landsins sé aukin krafa um afköst og skýrari fókus. "Stjórnendur sjá hag sinn í því að kaupa reynslu okkar og þekkingu. Þannig hámarka þeir afköst starfsmanna sinna og um leið fá allir að taka þátt í þeim viðburðum sem er verið að skipuleggja hverju sinni. Öll okkar verkefni eru klæðskerasniðin að viðskiptavini okkar hverju sinni og á það jafnt við um litla hvataferð, starfsdag fyrirtækis eða viðburði. Við leggjum okkur fram við að greina þarfir viðkomandi, kynnast hópnum og markmiðum dagsins. Þannig getum við útbúið dagskrá sem hittir í mark og skilar viðskiptavinum okkar arðbærri fjárfestingu og öflugri mannauð sem er tilbúinn að takast á við þau verkefni sem fram undan eru." Fram undan er annasamasti tími ársins hjá Practical enda eru verkefni á dagskrá. Marín segir að á þessum tíma árs hafi fjölmörg fyrirtæki samband til þess að bóka haustferðir, starfsdaga og hvataferðir auk þess sem starfsmenn hafi í nógu að snúast við undirbúning árshátíða sem haldnar verða þegar líður á haustið. Marín segir að bókunarfyrirvarinn sé oft skemmri á haustin sökum sumarleyfa en starfsmenn Practical leggi mikið upp úr háu þjónustustigi og vönduðum vinnubrögðum og geti því oft brugðist skjótt við þrátt fyrir að alltaf sé best að bóka í tíma. "Meiri fyrirvari þýðir einfaldlega að við höfum úr meiru að velja þegar kemur að staðsetningu, afþreyingu og öðru þess háttar."
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira