Fremstir í gólfefnum í 76 ár 29. september 2011 11:00 Ásgeir bendir á að Egill Árnason sé nú kominn á nýjan stað á Suðurlandsbraut 20, við hlið Eirvíkur. Hér er hann annar frá hægri ásamt Davíð Þorsteinssyni, Ágústi Haraldssyni, Guðrúnu Einarsdóttur og Einari Gottskálkssyni sölusérfræðingum. Mynd/Stefán
Egill Árnason ehf. hefur verið leiðandi fyrirtæki þegar kemur að gólfefnum í tugi ára. Allan þennan tíma hefur verið byggt á fremstu framleiðendum hverju sinni frá Danmörku, Ítalíu, Spáni og Þýskalandi, en eins og margir vita eru þessar þjóðir leiðandi í framleiðslu á vönduðum vörum. Það er þessi fullkomna blanda af gæðum og verði sem hefur sett Egil Árnason ehf. í fremstu röð, segir Ásgeir Einarsson framkvæmdastjóri. Plankaparket hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár en einkenni þess eru að parketborðin eru mótuð úr heilum planka og fá því veglegra, og að því er sumum finnst, náttúrulegra útlit heldur en hefðbundið stafaparket. Egill Árnason ehf. hefur undanfarin ár tekið forystu í sölu á parketi á íslenskum gólfefnamarkaði með veglegu úrvali af plankaparketi eða yfir 80 tegundum. Allt er plankaparketið með viðurkenndri viðarlæsingu, í fullri þykkt eða 14 mm og í löngum borðum sem eru 2,2 metrar á lengd, en það skiptir miklu máli varðandi gæði og endingu vörunnar. Að sjálfsögðu er allt parket frá Agli Árnasyni með UV-lakki sem hægir á öldrun viðarins og með 30 ára ábyrgð. Fyrir flesta eru gólfefnakaup ekki reglulegur þáttur í innkaupum og því er að mörgu að hyggja við val á gólfefnum. Það er einmitt þess vegna sem 600 fermetra sýningarsalur okkar á Suðurlandsbraut 20 er kjörinn staður til að setjast niður og velja þær prufur sem taka á með sér heim. Ef svo ólíklega vill til að ekki finnst gólf við hæfi má auðvitað breikka úrvalið með því að velja úr þúsundum tegunda sem fá má sérpantaðar. Ef viðskiptavinurinn er svo ekki með fastmótaðar hugmyndir um það sem óskað er eftir þá eru reynslumiklir sérfræðingar okkar til þjónustu reiðubúnir, hvort sem um er að ræða ráðgjöf við gólfið sjálft, viðhald eða lagningu, segir Ásgeir.Viðskiptavinirnir eru bestu sölumennirnir Með því að bjóða eingöngu vörur sem eru þrautreyndar á íslenskum markaði hefur tekist að byggja upp tryggan viðskiptavinahóp sem veit að gengið er að gæðunum vísum þegar kemur að vörum tengdum parketi og flísum. Ekki er svo verra að vita að í hverri viku kaupa tugir sérhæfðra iðnaðarmanna, parketlökk, parketlím, parketolíur og og parket, enda oft verið sagt að að fagmennirnir versli eingöngu þar sem verð og gæði fara saman. Það ætti því að vera auðvelt að velja hvert á að fara ef verið er að gera við gólf, bæta við eða leggja heilu húsin með nýjum gólfefnum. Að lokum bendir Ásgeir á að það borg sig að velja vandlega þegar verið er að velja gólfefni sem eiga að endast í tugi ára. Þess vegna sé það kjörið að spyrja fagmenn í parketlögnum hvort efnin hafi reynst vel áður en fjárfest er í nýju gólfi, með því má forðast að kaupa efni sem ekki er komin reynsla á á íslenskum markaði. Hefðbundið parket á að endast hið minnsta í 40 ár og við viljum tryggja að viðskiptavinir okkar fái vöru sem þeir eru ánægðir með, ekki bara þegar efnið er keypt heldur líka eftir 40 ár þegar tími er kominn á endurnýjun.
Sérblöð Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira