Svaka gott siðferði Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar 30. maí 2011 06:00 Það er viss fegurð í rusli úti við veginn og reykjandi ökumanni ökumanni í umferðinni með gluggana uppi árið 2011. Það sem er á skjön fangar augað og hrífur - nú eða stuðar. Sum erum við sérstaklega veik fyrir misfellum og þyrstir hreinlega í þær í einsleitu umhverfi. Fögnum illa hirtum grasbletti í Garðabæ og skoppandi silíkonbrjóstum í Árnagarði. Allt í stíl getur verið óbærilega leiðinlegt. Þess vegna líður mér hvergi betur en á Hlemmi eða í biðröð eftir Lottó. Kannski er þetta fylgifiskur þess að hafa alist upp að hluta til úti á landi. Allt verður svolítið þurrt ef maður hittir ekki einhvern fullan í miðri viku úti í búð eða heyrir rifrildi út um gluggann sem maður átti ekki að heyra. Geirfuglinn sem dúkkar upp í heita pottinum og úthúðar fæðingarorlofi sem hreinræktuðum kapítalisma er nákvæmlega sá sem gerir partíið loks eitthvað skemmtilegt. En á stílhreinum tímum þarf að kæfa fífilinn eina og annarlega og traðka nógu fast til að hann dúkki ekki aftur upp. Ég hræðist miklu meira þóttafull andlit sem hlæja að fíflunum en fíflin sjálf. Hneykslun á siðferði og viðhorfum annarra er enda yfirleitt ekki nema 2 prósent raunveruleg siðferðiskennd, 48 prósent gremja og 50 prósent öfund las ég í þrælskemmtilegri bók eftir finnskan fræðimann; Jaakko Heinimäki (sem reyndar hefur þau þar eftir Ítala). Syndirnar sjö kom út í íslenskri þýðingu árið 2003 en þar dustar þar rykið af antíkvarningnum dauðsyndunum sjö; hroka, ágirnd, öfund, hefit, munúð, nautnasýki og andlegri leti, en dauðasyndirnar eru reyndar hinn ágætasti leiðarvísir fyrir alla þá sem langar að lappa upp á innra líf sitt, óháð trú eða trúleysi. Heinimäki segir: „Öfundin sveipar sig oft mælskulist réttlætiskenndarinnar: „Svindl! Einn maður veikist af krabbameini þó að hann hafi frá æsku lifað heilbrigðu lífi og borðað hollan mat en nágranninn sem reykir og drekkur er eldhress hvernig sem hann lætur vaða á súðum.“ Dómur í nafni vandaðs siðferðis snýst ekki endilega um svo svaka gott siðferði. Að endingu má geta þess að óttist einhver hreinsunareldinn vegna hugsanlegrar dauðasyndir þá er ekki öll von úti ef einlæg iðrun og syndajátning á sér stað samkvæmt kaþólosku trúnni. Ég ætti hins vegar að láta staðar numið því það eru líka til minni háttar syndir, svokallaðar „fyrirgefanlegar syndir“, peccatum veniale, samkvæmt kaþólikkum. Ein þeirra er að gerast sekur um innantómt þvaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlía Margrét Alexandersdóttir Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun