Redknapp kemur Jordan til varnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2011 11:15 Nordic Photos / AFP
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að það sé ekki möguleiki að Joe Jordan, aðstoðarmaður sinn, hafi verið með niðrandi ummæli í garð Ítala í leiknum gegn AC Milan á þriðjudagskvöldið. Umboðsmaður Gennaro Gattuso steig fram í gær og ásakaði Jordan um að hafa kallað Gattuso „fucking Italian bastard" í leiknum. Eins og ítrekað hefur verið fjallað um lentu þeim Gattuso og Jordan tvívegis saman í leiknum. Í fyrra skiptið tók Gattuso hann hálstaki og í það síðara, eftir að leiknum lauk, skallaði hann Jordan. Á Gattuso von á löngu banni fyrir þetta en hann hefur þó beðist afsökunar á hegðun sinni. „Þetta er skýrt dæmi um það þegar einhver ákveður að ásaka einhvern um kynþáttaníð þegar hann vill draga athyglina frá því sem gerðist í raun og veru," sagði Redknapp við enska fjölmiðla. „Joe er og hefur aldrei verið rasisti. Það er ekki möguleiki á því að Joe sagði þetta." „Hann ber mikla virðingu fyrir Ítalíu og íbúum landsins. Hann á marga góða vini sem eru ítalskir, hann talar tungumálið og ber mikla virðingu fyrir lífsstíl Ítala," bætti Redknapp við en sjálfur lék Jordan á Ítalíu í þrjú ár snemma á níunda áratugnum, þar af í tvö ár með AC Milan. „Það er mér algjörlega óskiljanlegt að einhver haldi þessu fram, sérstaklega eftir að Gattuso er búinn að biðjast afsökunar á sínu."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ Sjá meira