Fyrirtækin verða stöðnun að bráð Steinunn Stefánsdóttir skrifar 11. febrúar 2010 10:50 Á Íslandi hefur 4.321 fyrirtæki á að skipa stjórnum með jöfnu kynjahlutfalli, þ.e. 40/60 hlutfall eða einn fulltrúi annars kynsins situr í þriggja manna stjórn.Á Íslandi hefur 4.321 fyrirtæki á að skipa stjórnum með jöfnu kynjahlutfalli, þ.e. 40/60 hlutfall eða einn fulltrúi annars kynsins situr í þriggja manna stjórn. Full ástæða er til að hampa þessum fyrirtækjum en því miður alls ekki tímabært að fagna góðum árangri. Á sama tíma eru nefnilega 22.327 fyrirtæki á Íslandi með stjórnir sem eingöngu eru skipaðar körlum. Þetta má lesa úr gögnum sem safnað hefur verið af Creditinfo. Í nýlegri rannsókn Creditinfo er sýnt fram á að fyrirtækjum þar sem bæði kyn eru í stjórn vegnar betur en fyrirtækjum þar sem stjórnin er eingöngu skipuð körlum. Þessi fyrirtæki sýna einfaldlega betri útkomu í rekstri. Einnig kemur í ljós að í 95% fyrirtækja þar sem eingöngu karlmenn sitja í stjórn eru ráðnir karlmenn í störf forstjóra eða framkvæmdastjóra. Það liggur því fyrir að ef auka á hlutdeild kvenna í stjórnunarstörfum á almennum vinnumarkaði þá verður að byrja á byrjuninni sem er að jafna kynjahlutfallið í stjórnum félaganna. Og það er brýnt að auka hlut kvenna á toppnum í fyrirtækjunum, ekki síst sé litið til þess að fyrirtæki sem stýrt er af konum sýna betri arðsemi eigin fjár en fyrirtæki undir stjórn karla, auk þess sem þau eru ólíklegri til að vera í vanskilum. Tæpt ár er liðið síðan undirritaður var samstarfssamningur Samtaka atvinnulífsins, Félags kvenna í atvinnurekstri og Verslunarráðs Íslands um að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs með það að markmiði að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Það verður fróðlegt að fylgjast með árangrinum í vor þegar ár er liðið frá undirritun samningsins og aðalfundir flestra fyrirtækja verður um garð genginn. Boltinn er nú hjá fyrirtækjunum og rétt að gefa þeim kost á að grípa hann og skora. Þolinmæðin er hins vegar ekki óþrjótandi og vera kann að setja þurfi fyrirtækjunum umferðarreglur til að fara eftir. Þannig kann að reynast nauðsynlegt að áskilja fyrirtækjum að skipa stjórnir sínar í jöfnum kynjahlutföllum rétt eins og ökumönnum er áskilið að halda sig innan ákveðins hámarkshraða. Tæplega tuttugu prósent stjórnarmanna í hlutafélögum á Íslandi eru konur. Hlutfallið er hins vegar 51 prósent sé litið til varastjórna. Þorri þeirra kvenna er áreiðanlega meira en tilbúinn til að taka sæti í aðalstjórn. Klisjan um að konur séu ekki tilbúnar til að takast á við stjórnarsetu heldur því engan veginn.Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo efndu í gær til þings þar sem fjallað var um fjölbreytni í forystu fyrirtækja. Aldrei hafa fleiri karlmenn sést á fundi þar sem jafnréttismál kynja eru til umfjöllunar en hlutfall þeirra var 43 prósent. Vænta má þess að allir þessir karlar hafi komið út af fundinum nokkru meðvitaðri um þau verkefni sem fram undan eru til að auka hlut kvenna við stjórnun fyrirtækja á Íslandi, öllum til hagsbóta vel að merkja. Nú þarf að bretta upp ermarnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Stefánsdóttir Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun