Róbert Marshall: Ísland er samt best 29. apríl 2010 09:10 Það er eins og maður sé kominn á tónleika hjá lögreglukórnum, sagði ég við Kjartan sýslumann þar sem hann stillti sér upp í röð á sviðinu með Haraldi Johannessen og Víði Reynissyni í almannavarnadeildinni ásamt fleiri sérfræðingum á íbúafundi á Hellu í síðustu viku.Ég sat á fremsta bekk með Rögnu dómsmálaráðherra, Kristjáni samgöngu, Jóni landbúnaðar og Álfheiði heilbrigðis. Þarna voru líka á fremstu bekkjum landlæknir og Trausti Jónsson veðurfræðingur. Katrín sem fræddi um áhrif öskunnar á dýrin, Sigrún sem sagði frá rannsóknum á vatninu, Hildur frá Bjargráðasjóði og Ásgeir frá Viðlagatryggingu. Prestur og læknir og sérfræðingur í áfallahjálp. Og svo kannski svona hundrað manns frá Hellu og nágrenni.Svona er Ísland best.Smæðin og nálægðin gerir það að verkum að hægt er að snara saman helstu ráðamönnum og forsvarsmönnum stofnana og sérfræðingum landsins til að takast á við aðsteðjandi vanda í sveitunum austan Þjórsár. Veita upplýsingar og stappa stálinu í heimamenn. Víðir Reynisson stýrði fundinum og fórst það vel úr hendi; þetta var afslappað en fagmannlegt, skipulagt en heimilislegt. Við erum ein fjölskylda og öll í þessu saman. Víðir man gosið í Eyjum og það stafar af honum reynslu og færni.Fundurinn stóð í einn og hálfan tíma og svo var haldinn annar á Hvolsvelli engu síðri og alveg eins.Það er samhugur og eindrægni sem einkennir okkur Íslendinga þegar á bjátar. Það eru þau verðmæti sem við búum að og eigum að sækja í núna þegar að okkur öllum steðjar stærri ógn en eldgos, jarðskjálftar og veðurofsi.Þau gerningaveður sem nú ganga yfir landið í kjölfar bankahruns bera í sér hættu sem á sér vart jöfnuð í sögunni. Efnahagslegt sjálfstæði landsins gæti farið forgörðum til langframa. Við höfum sumpart misst það í hendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og erum undir náð og miskunn vinaþjóða með lánveitingar.En það er tímabundið ástand. Nú ríður á að við stillum saman strengi okkar besta og færasta fólks, leggjum til hliðar pólitískar smákrytur og förum að haga okkur eins og fólk. Skýrslan liggur fyrir. Niðurstöðuna má setja svona í facebook-status: "Orsakir bankahrunsins er að finna í hinum neikvæðustu þáttum mannlegs eðlis."Margir finna til djúprar skammar. Það er í lagi en öllu má ofgera. Græðgi, óhóf, sérgæska og heimska eru enda ekki séríslensk fyrirbrigði nokkru fremur en að uppsprettu útrásarinnar hafi mátt finna í samanlögðum viskubrunni fornrar víkingaþjóðar í þúsund ár, jafnvitleysislegt og það hljómar í dag.Við höfum ekki ráð á frekari barlómi og við höfum ekki ráð á því að reka pólitík eins og þeir kynntu hér til sögunnar, hinir ágætu herramenn Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson. Pólitík hörku, reiði og persónulegrar óvildar. Við erum 320 þúsund og búum á eyju.Ríkisstjórnin og formenn stjórnarandstöðunnar ættu að fara með íbúafundi um allt land. Kannski með borgarafund í Háskólabíó. Kynna hugmyndir sínar og svara spurningum. Spurningin sem við þurfum að svara er þessi: markar skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis ekki grunninn í þeirri pólitík sem við þurfum að vinna hér á næstu árum?Það tel ég og myndi helst vilja byrja að vinna. Mér þóttu umræðurnar sem fram fóru í þinginu dagana tvo eftir rannsóknarskýrslu tilgangslitlar. Ég var ekki búinn að lesa skýrsluna og á enn langt í land. Kannski les ég hægar en allir á Íslandi. En það sem ég hef lesið segir mér að hér sé um grundvallarrit að ræða.Ég myndi vilja að minn stjórnmálaflokkur mótaði sér sérstaklega stefnu á grundvelli hennar og að aðrir gerðu slíkt hið sama. Þetta mun taka tíma, 1-2 ár, og á sama tíma þarf að skapa atvinnu og sinna bráðavanda heimila sem ráða ekki við afborganir. Í næstu kosningum, 2013, geta Íslendingar kosið sér þá forystu sem þeir telja að best hafi dregið lærdóm af hruninu og best hafi brugðist við í kjölfar þess.En umfram allt þurfum við nú að temja okkur þann lærdóm sem draga má af viðbrögðum þeirra sem komið hafa að náttúruhamförunum fyrir austan. Venjum okkur á vinsemd og kurteisi. Stuðlum að samhug og eindrægni. Munum að við erum ein fjölskylda og öll í þessu saman.Þannig er Ísland best. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar