Rooney: Vonast eftir því öðlast sömu virðingu hjá United og Beckham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2010 15:00 Wayne Rooney skoraði 4 mörk í 2 leikjum á móti AC Milan. Mynd/AFP
Wayne Rooney talaði um það eftir tvennu sína í 4-0 sigri á AC Milan í Meistaradeildinni í gær að hann vonaðist til þess að stuðningsmenn Manchester United mun sjá hann í sama ljósi og David Beckham sem fékk vasaklúta-móttökur á Old Trafford í gær. „David þjónaði félaginu frábærlega og allir leikmenn United voru ánægðir með móttökurnar sem hann fékk þegar hann kom inn á völlinn," sagði Wayne Rooney. „Ég vonast til þess að ég geti líka unnið mér inn jafn mikla virðingu meðal stuðningsmanna United og David Beckham hefur gert. Ég á fullt af árum eftir og ég yrði ánægður með að fá bara helminginn af þeim móttökum sem hann fékk," sagði Rooney. Wayne Rooney er á sínu sjötta ári hjá Manchester United, hann hefur skorað 127 mörk í 276 leikjum með félaginu, orðið enskur meistari þrisvar sinnum auk þess að vinna Meistaradeildina, tvo deildarbikara og Heimsmeistarakeppni félagsliða. David Beckham lék í átta ár hjá Manchester United oig skoraði 87 mörk í 399 leikjum fyrir félagið. Beckham varð sex sinnum enskur meistari, vann meistaradeildina einu sinni og enska bikarinn tvisvar sinnum. Beckham fór til Real Madrid þegar hann var 28 ára gamall.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Sjá meira