Múslimasamtök hóta Noregi Óli Tynes skrifar 10. janúar 2008 10:40 Múslimaklerkurinn Krekar fyrir rétti í Noregi.
Regnhlífasamtök herskárra múslima í Írak hafa hótað Norðmönnum "miklum sársauka" ef þeir vísa múslimaklerkinum Krekar úr landi. Honum var vísað frá Noregi á þeim forsendum að hann væri ógn við öryggi landsins. Krekar kom til Noregs frá Írak á níunda áratugnum, sem flóttamaður. Síðar kom í ljós að hann var leiðtogi uppreisnarhópsins Ansar al-islam. Hann braut margsinnis gegn skilyrðunum fyrir hæli í Noregi með því að fara til Norður-Íraks, til þess að stýra aðgerðum. Hæstiréttur Noregs staðfesti nýlega brottvísun Krekars frá landinu. Hann verður þó ekki sendur þangað í bráð þar sem Norðmenn reka ekki úr landi fólk sem á von á lífláti þegar það kemur heim. Staðan er því sú að Krekar fær að vera í Noregi þartil ástandið í Írak hefur skánað svo mikið að óhætt þyki að senda hann heim. Þetta dugar þó ekki fyrrnefndum regnhlífarsamtökum múslima sem segja í yfirlýsingu sem send var frönsku fréttastofunni AFP að það yrði mjög sársaukafullt fyrir Norðmenn ef Krekar fengi ekki að búa þar eins lengi og hann vildi. Innan þessara samtaka eru meðal annars Islamski herinn, Mujahedin herinn og hinn vopnaði armur samtakanna Ansar al-Sunna.
Erlent Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira