Sigurganga Hamars heldur áfram 5. nóvember 2008 21:31 Hamarsstúlkur eru einar á toppnum með fullt hús eftir sigurinn á Val í kvöld Mynd/Ooj
Kvennalið Hamars er á mikilli siglingu í Iceland Express deild kvenna og í kvöld vann liðið fimmta leikinn sinn í röð í deildinni. Hamar lagði Val 67-51 í Hveragerði í kvöld. LaKiste Barkus var stigahæst í liði Hamars í kvöld með 17 stig auk þess að taka 12 fráköst og gefa 7 stoðsendingar, en hún hitti reyndar aðeins úr 6 af 23 skottilraunum sínum. Næst kom Dúfa Ásbjörnsdóttir með 12 stig og Julia Demirer skoraði 11 stig og hirti 12 fráköst. Hjá Val var Signý Hermannsdóttir atkvæðamest með 14 stig og 10 fráköst og Lovísa Guðmundsdóttir skoraði 12 stig. Í Keflavík töpuðu heimastúlkur fyrir grönnum sínum úr Grindavík 78-75 í hörkuleik. Pálína Gunnlaugsdóttir (16 stig, 8 frák) og Ingibjörg Vilbergsdóttir (16 stig, 9 frák) voru atkvæðamestar hjá Keflavík, en Pétrúnella Skúladóttir var atkvæðamest hjá Grindavík með 19 stig og 7 fráköst. Haukastelpur lögðu Fjölni 71-60. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 18 stig fyrir Hauka, Slavica Dimovska skoraði 15 stig og þær Telma Fjalarsdóttir og Guðbjörg Sverrisdóttir 14 hvor - en Telma hirti auk þess 14 fráköst. Ashley Bowman var allt í öllu hjá Fjölnisliðinu með 28 stig og 6 stolna bolta. Loks vann KR öruggan sigur á Snæfelli í Stykkishólmi 76-54. Hamar er á toppnum með 10 stig eftir fimm umferðir, Haukar í öðru með 8 stig, Grindavík, Keflavík og Valur hafa 6 stig, KR 4 og Snæfell og Fjölnir eru án stiga á botninum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira