Á sama stað í tuttugu ár 19. desember 2008 03:00 Hópurinn hittist síðastliðinn miðvikudag að venju og gæddi sér á jólamat. fréttablaðið/stefán
Í heil tuttugu ár hafa fjórtán vaskar vinkonur hist á hverjum miðvikudegi á veitingastaðnum Á næstu grösum og snætt heilsusamlegan hádegisverð. Þessar sömu konur byrjuðu saman í leikfimi fyrir um 26 árum og hafa haldið hópinn síðan. „Ein okkar byrjaði á því að smala vinkonum og kunningjakonum í leikfimi. Þá var Jane Fonda upp á sitt besta og gerðum við æfingarnar hennar. Síðar fórum við til Ágústu Johnson í Hreyfingu og sumar eru þar enn," segir Ragna María Gunnarsdóttir, sem tók að sér að segja frá því hvernig þessi skemmtilega hefð varð til. „Við ákváðum síðar, eða árið 1988, að hittast í hádeginu og fá okkur eitthvað hollt í kroppinn ásamt því að fá fréttir hver af annarri. Miðvikudagar urðu fyrir valinu og höfum við verið fastagestir Á næstu grösum síðan. Hópurinn á sitt eigið borð á veitingastaðnum, sem er á horni Laugavegar og Klapparstígs, en Ragna segir að allur gangur sé á því hvort allur hópurinn mæti hverju sinni. „Það fer eftir aðstæðum en við göngum þó að því vísu að þarna eru alltaf einhverjar úr hópnum." Hópurinn, sem fékk snemma nafnið tindilfættu bullukollurnar, eða TBK, hefur gert ýmislegt annað sér til skemmtunar og hefur vinskapur tekist á milli maka kvennanna. „Við höfum farið í göngur bæði innanlands og utan, haldið jólaboð, veislur og ýmislegt fleira." Núverandi eigendur Á næstu grösum ákváðu nýverið að þakka konunum fyrir dygg viðskipti með því að bjóða þeim í þrírétta afmæliskvöldverð. Þær fengu grænmetis kebab með taziki í forrétt, gríska moussöku, tómat-tartar og möndlupaté í aðalrétt, og nýbakaða eplaköku og pekan pie í desert. Síðastliðinn miðvikudag hittust þær svo í sérstökum jólahádegisverði.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist