Íhaldsflokkurinn sigraði 4. maí 2007 12:00
Verkamannaflokkurinn tapaði umtalsverðu fylgi þegar kosið var til sveitarstjórna í Bretlandi og til velska og skoska þingsins í gær en íhaldsmönnum vegnaði vel. Framkvæmd kosninganna í Skotlandi virðist hafa verið mjög ábótavant. Í raun var um þrískiptar kosningar að ræða, þingkosningar í Wales og Skotlandi og sveitastjórnarkosningar víða um Bretland. Endanleg úrslit verða ekki birt fyrr en síðar í dag en útlit er fyrir að á landsvísu hafi Íhaldsflokkurinn fengið 41 prósent atkvæða, Verkamannaflokkurinn 27 prósent og frjálslyndir demókratar 26 prósent. Í Wales er Verkamannaflokkurinn áfram stærstur en tapar umtalsverðu fylgi til íhaldsmanna og þjóðernissinna. Í Skotlandi eru teikn á lofti um að skoski þjóðarflokkurinn sé orðinn stærsti flokkurinn en hann hefur sjálfstæði Skotlands á stefnuskránni. Mikill vandræðagangur hefur annars einkennt kosningarnar þar. Kjörseðlarnir eru afar flóknir þar sem bæði er verið að kjósa til þings og sveitarstjórna og því er talið að allt að 100.000 kjörseðlar séu ógildir. Rannsókn á framkvæmdinni hefur verið fyrirskipað og jafnvel getur komið til þess að kjósa þurfi aftur í landinu. Þetta eru síðustu kosningar Verkamannaflokksins undir forystu Tony Blair og óhætt er að fullyrða að hann hefði viljað kveðja á annan hátt. Reiknað er með að hann láti af völdum nú í sumar.
Erlent Fréttir Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira