Billjónsdagbók 16.12.2007 16. desember 2007 00:01 OMXI15 var 6.523,81, þegar mér varð ljóst í morgun að Lilli í Fjórgrúpp væri með allt niðrum sig, og Nasdaq var 2.671,14 þegar ég sá að ég mundi missa allt niðrum mig líka ef ég hysjaði ekki upp um Lilla undireins. En eins og máltækið segir: Neyðin kennir blönkum fjárfesti að búa til aur. Ég togaði í Eingrúpp og lét Eingrúpp toga í Tvígrúpp og Tvígrúpp toga í Þrígrúpp og Þrígrúpp toga í Fjórgrúpp og þegar Lilli var kominn sem nemur eins og hálfum forstjóra upp úr feninu, slepptum við takinu og... ... þetta mátti ekki tæpara standa. Klukkan var 11 grínitsj míntæm, við Mallí komin í límúsínu út á London Sittí Erport og ég að ganga frá láni fyrir nýju þotunni sem mér hafði með naumindum tekist að fá sjálfan mig til að lána sjálfum mér í Sjálfs-mínbanka. Mallí spurði hvað ég þyrfti mikið lán til að geta borgað græjuna. Ég gat að sjálfsögðu ekki upplýst hana um það því að Sjálfsmínbanki er bundinn trúnaði við viðskiptavini. Mallí spurði líka hvort væri hætta á að við misstum þotuna ef ég stæði ekki í skilum með afborganir. Ég sagði hún gæti sofið rólega eins og forsætisráðherra; Sjálfsmínbanki væri með veð í þotunni. Við héldum upp á nýju þotuna með því að sofna á óperu í Covent Garden. Ég er ekki búinn ennþá að fatta almennilega að ég á mína eigin pörsonal præveit djett, Gulfstream 550, fjörutíu og eitt tonn af heljartökum á íslenskum stjórnmálamönnum og yfirráð yfir íslensku samfélagi sem eru 29,4 metrar á lengd og 2,24 metrar á breidd. Kannski hefur það ekki stimplast inn því að ég verð að láta geyma þotuna fram yfir áramót. Vantar fjóra menn í áhöfn. Helst Pólverja frá Jarðvélum. Frábært annars að geta keypt t.d. heilt knattspyrnufélag eða eitt stykki þotu ef maður hefur aðgang að sínum eigin banka og á slatta af grúppum sem hægt er að láta toga hverja í aðra. Núna í desember er ég er búinn að fá allt, sem getur flogið og mig hefur dreymt um, allt nema rjúpur. Ég bauð 30.000 kr. fyrir stykkið um daginn en rjúpnadelinn yppti bara öxlum. Dóri skrifstofublók fékk sex rjúpur hjá frænda sínum fyrir ekki neitt. Þotan er næs – en það kemur ekkert í staðinn fyrir rjúpur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun