Á þjóðhátíðardegi 17. júní 2007 01:00 Ég vil byrja á því að óska lesendum Fréttablaðsins gleðilegs þjóðhátíðardags. Þennan dag gleðjumst við, borðum þessar blessuðu pylsur, blásum í blöðrur, förum í skrúðgöngur og skemmtum okkur fram á nótt. Þennan dag rifjum við upp söguna, minnumst þeirra sem á vörðuðu brautina til sjálfstæðis og hugleiðum hvert þessi sameiginlega vegferð okkar muni leiða. Til allrar hamingju er bjart nærri allan sólarhringinn þannig að það gefst nokkur tími til að komast yfir allt þetta. Ég mæli heldur með því að byrja á því að velta vegferðinni og sögunni fyrir sér áður en hæ hó og jíbí jei-ið byrjar. Okkur miðar velÞað er með ólíkindum hvað okkur Íslendingum hefur miðað á undanförnum árum. Vandfundin er sú þjóð sem hefur náð að bæta lífskjör sín betur og á sú fullyrðing við hvort sem horft er til síðustu hundrað ára eða síðasta áratugar. Á þessum tíma hefur okkur tekist að vinna bug á ömurlegri fátækt og bjargarleysi, komist til bjargálna og nú erum við í hópi ríkustu þjóða veraldar. Auðvitað búum við ekki í fullkomnu landi, en það er ástæða fyrir okkur til að gleðjast í dag yfir þeim árangri sem náðst hefur. Ástæða er einnig til að vera bjartsýn þegar við horfum fram á veginn. Við erum ung þjóð, sköpunarkrafturinn í atvinnulífinu er mikill, frumkvöðlar eru á hverju strái og okkur hefur vaxið ásmegin í viðskiptum okkar á erlendri grund. Ríkiskassinn stendur vel, skattar eru lágir og munu lækka enn, lífeyrissjóðirnir eru meðal þeirra bestu í heimi og innviðir samfélagsins hafa styrkst til muna. Landið okkar er fagurt og frítt og okkur miðar áfram í átt að þokkalegri sátt um hvernig við eigum að nýta náttúruna og vernda. Sóknarfærin okkar liggja í menntun og vísindum; mannauðurinn, ásamt gríðarlegum náttúruauðlindum, verður aflvaki hagvaxtar og nýsköpunar á næstu árum og áratugum. Einhver ánægjulegasta breyting á íslensku efhanagslífi er vöxtur fjármálaþjónustunnar, sóknarfærin á þeim vettvangi eru óendanleg og einu takmörkin eru við sjálf. Til lengri tíma horft er engum vafa undirorpið að langtímahorfur okkar eru góðar, svo gripið sé til orðfæris bankamanna. En vandamálalaust verður þetta ekki. Ef horft er til næstu missera þá á enn eftir að koma í ljós hvort það takist að lenda efnahagslífinu mjúklega eða hvort við fáum högg. Háir vextir Seðlabankans geta ekki staðið endalaust, það hlýtur að líða að því að þeir lækki. En sérstakt áhyggjuefni er núna sú staðreynd hversu illa gengur að byggja upp þorskstofninn, þrátt fyrir að við höfum farið býsna nærri ráðgjöf fiskifræðinga nú um nokkra hríð. Fyrir vikið er staða landsbyggðarinnar að veikjast, minnkandi afli, ásamt reyndar hagræðingu, hefur leitt til þess að ársverkum í sjávarútvegi hefur fækkað úr 15.500 árið 1996 í 8.400 tíu árum síðar. Þetta segir til sín í atvinnulífi landsbyggðarinnar. Ríkisstyrktur sjávarútvegur?Framsal aflaheimilda er forsenda aflamarkskerfisins, möguleikinn til að kaupa og selja aflaheimildir er megin skilyrði þess að hagræðing náist í greininni. Vitanlega getur framsalið valdið vandamálum á landsbyggðinni, einkum á smæstu stöðunum. En það er ekkert vit í því að ætla að styrkja sjávarþorpin með því að vængstýfa sjávarútveginn. Á árunum 1980 til 1984 var tap á sjávarútveginum á bilinu 5 til 9 prósent og það þurfti að eyða skattfé til þess að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot í greininni. Atvinnuöryggið var ekkert við þær aðstæður, aðalatvinnuvegur landsbyggðarinnar var á hnjánum og allt hagkerfið var upp í loft. Þetta var fyrir daga aflamarkskerfisins. Frá 1991 hefur greinin hins vegar verið rekin með hagnaði nærri á hverju ári og verðmæti aflaheimilda endurspeglar þá trú sem útgerðarmenn og fjármálastofnanir hafa á framtíðinni. Eflum hafrannsóknirAðgerðir í byggðamálum verða því að beinast að samgöngum, samkeppnisstöðu, menntamálum og menningarmálum. Það tapa allir á því að draga úr hagkvæmni sjávarútvegsins. Jafnframt er nauðsynlegt að að skoða betur samspil fiskveiðiráðgjafarinnar og fiskveiðistjórnunarinnar, án þess að hróflað verði við eignarréttindum útgerðarmanna. Sem innlegg í þá umræðu hef ég áður lagt til að stofnuð verði hafrannsóknardeild við Háskóla Íslands sem skili til ráðherra tillögum sínum samhliða tillögum Hafró. Ég mun ræða nánar þessa hugmynd í næstu grein sem mun birtast í ágúst næstkomandi, þangað til mun ég taka mér frí frá skrifum. Að lokum vil ég endurtaka óskir mínar um gleðilegan þjóðhátíðardag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skoðun Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar