Innmúrun Baugsmála – nokkrar samsæriskenningar 24. mars 2006 20:01 Sullenberger er í vinfengi við Jónínu Benediktsdóttur. Hún hefur samband við Styrmi Gunnarsson, sem er Sullenberger innan handar um skjalaþýðingu, útvegar honum lögmann Jón Steinar Gunnlaugsson og ráðfærslu Kjartans Gunnarssonar. Systir Davíðs Oddssonar (fullt nafn?) er dómarinn sem gefur út mjög viðamikla húsleitarheimild hjá Baugi, á grundvelli framburðar Sullenbergers. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri er tengdasonur Styrmis Gunnarssonar (?). Björn Bjarnason dómsmálaráðherra gefur ítrekað út álit á rekstri málsins. Nýr saksóknari í málinu, Sigurður Tómas Magnússon, er starfsbróðir Jóns Steinars Gunnlaugssonar úr HR, áður en sá síðarnefndi er skipaður hæstaréttardómari. Sigurður þiggur starfið þrátt fyrir að hann sé óhæfur til þess, sem dómari, að áliti dómstólaráðs (?). Eftir sýknu fyrir undirrétti hafa aðilar úr HR frumkvæði að því að halda áfram að 'reka málið í fjölmiðlum', þ.á.m. með hvatningu um áfrýjun.(Assmodeus) --- --- --- "Systir Davíðs Oddssonar (fullt nafn?) er dómarinn" Assmodeus, ert viss um þetta? (Hawk 12) --- --- --- Systir eða náfrænka. Ég tel mig muna það rétt. (Assmodeus) --- --- --- Herdís Þorvaldsdóttir, héraðsdómari, er systir Barkar frænda! (Allhvass) --- --- --- Herdís eða Hervör? (Skrolli) --- --- --- Þið gleymið að taka fram að Jón Ásgeir og Jóhannes staðhæfðu báðir við útgáfu ákæra að það væri hægt að treysta héraðsdómi en ekki hæstarétti. Enda kemur í ljós að dómar hafa fallið þeim í hag í héraðsdómi en ekki í hæstarétti. Skyldi þetta vera af því að héraðsdómur sé ódýrari. (Temujin) --- --- --- Ertu að gefa í skyn að dómaranum hafi verið mútað? (Assmodeus) --- --- --- Gleymum ekki bolludagsútspili Davíðs, sagði Baug hafa ætlað að múta sér um 300 millur, ekkert hefur verið rannsakað hvort þessar staðhæfingar hans hafi verið réttar. Svo stuttu seinna er gerð innrás á skrifstofur þess fyrirtækis sem hann sagði hafa reynt að múta sér........ (FransKafka) --- --- --- Viðtalið við Davíð var á bolludaginn árið 2003 en menn gerðu húsleitina hjá Baugi sumarið 2002. (Stefán Friðrik Stefánsson) --- --- --- Fjandskapur Davíðs út í Baug er öllum kunnur og skoðast sem lesinn í þessari úttekt. (Assmodeus) --- --- --- Haraldur Johannessen er vissulega tengdasonur Styrmis. Þannig var að þegar Styrmir og Matthías ritstýrðu Morgunblaðinu saman fóru þeir eitt sinn til Amsterdam og létu gefa sig saman, ættleiddu síðan lítinn dreng sem þeir nefndu Harald - nei, annars, Haraldur er þá sonur Styrmis! Ekki gleyma því heldur að Herdís Þorvaldsdóttir (dómari) er móðir Hrafns Gunnlaugssonar sem er nánasti vinur Davíðs Oddssonar. Hún er líka systir Ólafs Barkar, sem er þá móðurbróðir Hrafns. Þannig að þræðirnir ná víða í þessu máli. (Barbarossa) --- --- --- Ertu að gera grín eða...? Móðir Hrafns hét Herdís, það minnir mig að sé rétt, en hún var þekkt leikkona og er komin undir græna (minnir mig). Herdís dómari er trúlega yngri en Hrafn Gunnlaugsson. (Assmodeus) --- --- --- (Umræðan heldur sjálfsagt áfram á Málefnunum, þar er ekki skortur á hugsvölun. Rétt er að taka fram að Herdís Þorvaldsdóttir, sú ástsæla leikkona, er ekki systir Ólafs Barkar - og að stjórnandi þessa vefjar sér hana oft og einatt í Sundlaug Vesturbæjar. - EH.) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun
Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun
Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson Skoðun