Flugvöllur á krossgötum 13. október 2005 19:47 Reykjavíkurflugvöllur - Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi Nú virðast allt í einu allir flokkar í borgarstjórn vera orðnir sammála um að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni verði að fara. Sjálfstæðismenn eru jafnvel farnir að tala hispurslaust um það, enda þótt þeir reyni að gera fyrirhugaða samkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar eins tortryggilega og þeim er frekast unnt. Líklega eru þeir þó aðeins að reyna að slá pólitískar keilur og ekki gott að átta sig á því hvað þeir raunverulega meina. En lítum aðeins nánar á flugvallarmálið. Reykjavíkurlistinn tók þá ákvörðun á sínum tíma að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um skipulagslega framtíð Vatnsmýrarinnar. Niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu var að meirihluti kjósenda vildi að flugvöllurinn myndi víkja. Í gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur til ársins 2024 er við þetta miðað. Þar er gert ráð fyrir að stysta flugbrautin (svokölluð NA-SV flugbraut) víki á tímabilinu 2005-2008, að norður-suður flugbrautin víki fyrir árið 2016 en á síðasta hluta skipulagstímans sé rými fyrir austur-vestur flugbrautina. Þannig myndi flugvöllurinn hopa í áföngum. Jafnframt er gert ráð fyrir því að fram fari alþjóðleg hugmyndasamkeppni um nýtingu Vatnsmýrarinnar. Þegar skipulagið var í vinnslu var Sjálfstæðisflokkurinn andvígur því að flugvellinum yrði gert að hopa. Það á bæði við um sjálfstæðismenn í borgarstjórn og ríkisstjórn. Nú er að heyra að annað hljóð sé komið í strokkinn, jafnvel samgönguráðherra telur koma til álita að skoða aðra kosti fyrir flugvöll. Batnandi mönnum er best að lifa. Hins vegar má ekki gleyma því að í tengslum við aðal- og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins var unnin ítarleg vinna um flugvallarmálið og margvíslegir kostir um aðra staðsetningu skoðaðir. M.a. hugmynd um flugvöll á Lönguskerjum. Sú hugmynd fékk ekki góða umsögn, hvorki frá umhverfislegu, fjárhagslegu eða flugrekstrarlegu sjónarmiði. Ég er þeirrar skoðunar að sú hugmynd sé enn jafn vond og hún var þá. Við eigum ekki að sóa milljarðatugum í byggingu nýs flugvallar í nágrenni höfuðborgarinnar. Við eigum þvert á móti að nýta þá ágætu fjárfestingu sem er til staðar í Keflavík og byggja þar upp innanlandsflugið. Samhliða á þá að bæta enn frekar samgöngur milli flugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins. Þegar hafa verið gerðar nokkrar bætur hvað varðar Reykjanesbrautina en enn betra væri að fjárfesta í vistvænum almenningssamgöngum. Það er þrátt fyrir allt ekki nema 40 km og þá vegalengd er hægt að stytta, og ferðatíminn þarf ekki að vera nema 20-30 mín. Og úr því að svo virðist sem þverpólitísk samstaða geti tekist um að flugvöllurinn fari, þá eigum við að einhenda okkur í það að semja við ríkið um að flýta þeim áformum. Við þurfum ekkert endilega að bíða til ársins 2016. Þegar upp verður staðið þá munu allir hagnast á slíkri ákvörðun. Ekki síst mun umhverfi okkar og komandi kynslóðir hagnast. Brottflutningur flugvallarins í Vatnsmýrinni mun færa okkur einstakt tækifæri til að skipuleggja flugvallarsvæðið með alveg nýjar áherslur að leiðarljósi. Við eigum kost á að skipuleggja og byggja sjálfbæra miðborgarbyggð þar sem manneskjan er í forgrunni en ekki bíllinn, þar sem hjóla- og göngustígar eru vel skipulagðir og sjálfsagðir og þar sem sorpmálin eru skipulögð með tilliti til skynsamlegrar flokkunar og endurvinnslu. Og þar sem við tryggjum grænt belti frá miðborginni að Nauthólsvík en byggðin verður þétt, þó ekki endilega háreist og þar sem við blöndum saman íbúðabyggð og atvinnustarfsemi, ekki síst þeirri sem tengist háskólunum, rannsóknum og vísindum. Þegar Vatnsmýrin byggist upp eigum við ennfremur að setja nýju Hringbrautina í stokk og nýta landið sem hún tekur nú betur og tengja þá betur saman nýju byggðina í Vatnsmýri við Þingholtin og miðborgina. Þau tækifæri sem felast í Vatnsmýrinni fyrir þróun höfuðborgarinnar eru afar dýrmæt. Höfuðborgarsvæðið hér á í alþjóðlegri samkeppni við aðrar borgir og borgarsvæði. Það eru hagsmunir landsins alls að vel takist til og að Ísland eigi sér öfluga og sterka höfuðborg sem stenst þá hörðu samkeppni sem borgir eiga í um fólk og fyrirtæki. Sú tíð er löngu liðin að átakalínurnar í byggðaþróuninni séu milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Það eru sameiginlegir hagsmunir landsbyggðar og höfuðborgar að hlúa hvort að öðru því ella missum við dýrmætustu auðlindina okkar, fólkið sjálft, úr landi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Skoðun Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar