Kennedy leitaði lausnar 8. júní 2005 00:01
Nýbirt skjöl sýna að John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, reyndi að finna diplómatíska lausn á Víetnamstríðinu með leynilegum samningaviðræðum við Rússa og Norður-Víetnama. Mikið hefur verið rætt og ritað um hver hefði orðið framvinda stríðsins í Víetnam ef John F. Kennedy hefði ekki verið myrtur í Dallas í nóvember árið 1963. Aðdáendur Kennedys hafa haldið því fram að hann hefði fundið pólitíska lausn eða jafnvel flutt bandaríska hermenn einhliða frá Víetnam. Þeir segja að þótt ekki væri annað hafi Kennedy mjög vantreyst hershöfðingjum eftir hina hraksmánarlegu innrás á Svínaflóa á Kúbu árið 1961. Nýfundin skjöl sýna að Kennedy reyndi að finna diplómatískar leiðir til þess að binda enda á átökin, löngu áður en bandarískar hersveitir voru sendar til Víetnams. Þetta var reynt með milligöngu Indverja og Pólverja. Skjölin benda til þess að Rússar hafi verið fúsir til þess reyna að kæla niður ólguna í Asíu en Norður-Víetnamar hafi verið tregir í taumi. Umrædd skjöl eru úr skjalasafni Averells Harrimans, sem á þessum tíma var aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og úr skjalasafni pólsku kommúnistastjórnarinnar sem var við völd á þessum árum. Í þessum skjölum kemur einnig fram að haukarnir í Washington voru þessu mjög andvígir, ekki síst Robert McNamara varnarmálaráðherra. Þessar þreifingar voru fyrri hluta árs 1962, rúmu ári áður en Kennedy var myrtur. Auðvitað veit enginn hvað hefði gerst ef Kennedy hefði lifað og setið annað kjörtímabil. Bróðir hans, Edward Kennedy, er þó ekki í vafa. Hann sagði um þessi nýju skjöl að þetta væri enn ein vísbendingin um að Jack(/...John?) var tregur til að láta undan þrýstingi um að senda hersveitir til Víetnam. Það væri erfitt að trúa því að hann hefði leyft þessum friðarumleitunum sínum að þróast út í þá hrikalegu herför sem stríðið í Víetnam var.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira