Færri herstöðvum lokað en til stóð 13. október 2005 19:12
Herstöðvum Bandaríkjamanna á heimavelli verður fækkað mun minna en til stóð. Áhrifin á Keflavíkurstöðina eru óljós en fjölmargar tillögur hafa verið lagðar fram um framtíðarfyrirkomulag stöðvarinnar. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, greindi frá tillögum um niðurskorð í gær og sagði umframrými herstöðva yrði minnkað um fimm til ellefu prósent á næstu tuttugu árum. Þannig vill hann spara ríkissjóði allt að fimmtíu milljarða dollara. Niðurskurðurinn er þó mikið minni en í upphafi var talið en þá var rætt um allt að fjórðungsniðurskurð á herstöðvum í Bandaríkjunum. Nú segir Rumsfeld það óhentugt þar sem fjöldi hermanna sem er við störf erlendis og með aðsetur í bandarískum herstöðvum utan Bandaríkjanna sé væntanlegur heim á næstunni. Rumsfeld nefndi hins vegar ekki niðurskurð á herstöðvum erlendis, en niðurskurður á Keflavíkurstöðinni fellur undir þann lið. Í ljósi þess að ekki á að skera mikið niður vestan hafs má þó leiða líkum að því að enn minni ástæða sé til þess að halda úti stórum herstöðvum utan landamæra Bandaríkjanna auk þess sem það samræmist ekki vel þeirri stefnu sem er ríkjandi innan hersins sem stendur. Viðmælendur fréttastofu Bylgjunnar segja margs konar tillögur hafa verið unnar um framtíð Keflavíkurstöðvarinnar sem feli í sér breytingar af öllum gerðum, frá róttækum niðurskurði sem lyki með aðeins nokkrum tugum hermanna til rekstrarbreytinga sem gætu haft í för með sér að umfang Keflavíkurstöðvarinnar myndi aukast. Beðið er ákvörðunar í Hvíta húsinu og viðræðna við íslensk stjórvöld.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira