Óvíst hversu langt herinn fer 11. mars 2005 00:01
Sýrlenskar hersveitir hörfa nú frá hlutum Líbanons en óvíst er hversu langt þær fara. Þrýstingurinn vex á Sýrlendinga að hverfa með öllu frá Líbanon og óttast er að spennan þar geti valdið uppnámi í kringum þingkosningar í maí næstkomandi. Flutningurinn hófst fyrir dögun í morgun en þetta er fimmti dagurinn sem flutningarnir standa. Nánast allar sýrlenskar hersveitir eru nú horfnar frá norðurhluta Líbanons og halda í stað þess fyrir í Beeka-dalnum, skammt frá landamærum Líbanons og Sýrlands. Brottflutningurinn er afleiðing mikilla mótmæla og andstöðu við veru hersveita Sýrlendinga í Líbanon, bæði meðal almennings í landinu og alþjóðasamfélagsins. Sýrlendingar virðast þó ekki hafa í hyggju að hverfa með öllu frá Líbanon með hersveitir sínar og víðast hvar þaðan sem sveitirnar eru horfnar eru leyniþjónustumenn ennþá eftir. Þetta þykir Bandaríkjamönnum og fleirum ekki nóg og hefur þrýstingurinn á stjórnvöld í Damaskus aukist jafnt og þétt undanfarna daga. Terja Roed-Larsen, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna á svæðinu, væntir þess að fá endanlega tímaáætlun um brottflutning hersveitanna á næstunni, enda segir hann það í samræmi við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Sýrlendingar og bandamenn þeirra í Líbanon vísa ályktununum hins vegar á bug, segja fáránlegt að krefjast þess að sumir fari eftir þeim á meðan aðrir, og meina þá Ísrael, geti virt hverja ályktunina á fætur annarri að vettugi.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira