Útnefningaspilling 26. janúar 2005 00:01 Maður les í Fréttablaðinu að Framsókn "eigi" fréttastjórastöðuna á útvarpinu. Þeir muni fá að ráðstafa henni. Vonandi felst ekki í þessu að sá sem er hæfastur til að gegna starfinu verði ekki ráðinn. Það væri skrítið ef gengið væri framhjá hinum margreynda og hámenntaða Friðriki Páli Jónssyni, en líklega verður það raunin. Pólitíkusunum þykir hann ekki nógu áreiðanlegur. Hitt er svo annað mál að maður vill fremur hlusta á Friðrik Pál í útvarpinu en vita af honum í einhverri stjórnsýslu. Sigríður Árnadóttir er sögð líkleg til að hreppa stöðuna. Henni er treystandi til að standa vörð um hefð sem nær nánast aftur í árdaga útvarpsins. Fyrir einhvern misskilning var reynt að flytja þessa hefð upp á Stöð 2; það snerist fyrst og fremst um þá hugdettu að fréttastofa Stöðvar 2 fengi aukinn virðuleika. Það entist ekki einu sinni í ár. Nú er komin önnur stefna þar uppfrá. Er rétt athugað hjá mér að það sé meira um kerlingafréttir, afsakið - fréttir á mannlegu nótunum? Að allt í einu sé kominn meiri dr. Phil í fréttatímana? Ítalir hafa náð mikilli fágun í þessari tegund spillingar - þar hafa stjórnmálaflokkar útdeilt embættum eftir nákvæmu fyrirkomulagi. Öllu þjóðfélaginu hefur verið skipt upp milli þeirra. Þetta kerfi hefur verið kallað lottizzazione. Til skamms tíma kvað svo rammt að því að kommúnistarnir áttu fiðlurnar í La Scala og fengu líka að raða í stöður á póstinum. Hér hafa menn reynt að nota orðið útnefningaspilling - ég veit ekki hvort það er brúklegt. --- --- --- Besta þraut sem ég hef séð í raunveruleikaþætti er að láta fólk skrúfa saman Ikea mublur. Ég mundi ekki óska versta óvini mínum að þurfa að leysa þetta. Sjálfur ákvað ég fyrir mörgum árum að kaupa aldrei framar Ikea - heilsunnar vegna. Fólkið i Kapphlaupinu ógurlega var líka alveg að að niðurlotum komið. Það eru allar líkur á því að brátt hnígi keppandi í þáttunum niður örendur. Maður er eiginlega með lífið í lúkunum að horfa á þetta. Þarna er allt sem veldur skyndilegu hjartaslagi - áreynsla, stress, æsingur, reiði, þreyta. Kannski verða þættirnir ennþá vinsælli fyrir vikið. Annars eru þetta einu raunveruleikaþættir sem ég hef nennt að horfa á. Keppendurnir versna stöðugt; í þáttaröðinni sem er verið að sýna núna eru sumir eins og þeir hafi sloppið úr dýragarði. --- --- --- Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra boðaði frumvarp um bann við reykingum á veitingahúsum í sumar. Stóð til að leggja það fram í haust. Enn bólar ekkert á frumvarpinu. Skyldi Jón vera að heykjast á þessu eða næst ekki samstaða um frumvarpið í ríkisstjórn. Eitt er víst að þegar þetta kemur fram má búast við háværum mótmælum frá ungum sjálfstæðismönnum sem álíta þetta meiriháttar frelsisskerðingu. Ég er ekki viss um að aðrir verði til að andmæla - enginn vill láta stimpla sig sem vin reykinga. En eins og ég benti á í grein um daginn er himinhrópandi þversögn í því hvernig áfengi er hampað og ýtt undir neyslu þess meðan tóbakið fer nánast að verða neðanjarðarvara. --- --- --- Í DV í dag var frétt um að foreldra sem ku vera reiðir yfir því að í Stundinni okkar voru flutt lög úr söngleiknum Fame. Eru textarnir sagðir vísa til hluta sem ekki eru við hæfi barna - dóps og kynlífs. Ég hitti móður niðri í bæ sem sagði að hún vildi frekar að dóttir sín sæi Fame en að hún læsi DV. --- --- --- Ég hef áður nefnt hvað Kári er eindreginn Davíðsmaður: Kári: Ég hefur hittað Davíð. Egill: Er Davíð góður? Kári: Já. --- --- --- Bendi svo á lífleg skoðanaskipti um kortið Ísland örum skorið hér neðar á síðunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir Skoðun