Innlent

Eðli­legt að hafa á­hyggjur

Lögð verður áhersla á að innleiða nýtt einkunnakerfi í grunnskólum landsins hratt, að sögn forstjóra Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu. Þá eigi eftir að koma í ljós hvort einkunnagjöf með tölustöfum í stað bókstafa muni skila því sem lagt sé upp með.

Innlent

Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu

Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að hafi fallið út í Jökulsá á Brú við Stuðlagil. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag.

Innlent

Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“

„Þetta rétt gekk,“ skrifar móðir í aðsendri grein á Vísi er hún lýsir þreytu eftir sumarfrí skólanna, þar sem foreldrar hafi átt í ströngu við að finna börnum sínum eitthvað að gera á daginn og keppst um pláss á sumarnámskeiðum. Eftir „skítamixsumarið mikla“ segir hún að skólabjallan hafi sjaldan hljómað eins undursamlega að hausti. Hún spyr hvort sumarfrí frá skólum þurfi virkilega að vera tíu og hálf vika enda sé það styttra í nágrannalöndum.

Innlent

„Skutlarinn“ á­kærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman

Ríkis­saksóknari hefur fellt úr gildi þá ákvörðun em­bættis héraðssaksóknara að ákæra ekki svo­kallaðan skutlara fyrir líkamsárás. Sá hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kyn­ferðis­lega áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum. Skutlarinn er sakaður um að hafa barið aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra.

Innlent

Andri hafi verið yfir­vegaður við hand­tökuna

Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag.

Innlent

Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil

Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu.

Innlent

Telur raun­sætt að Ís­lands­mið verði „sér­stakt stjórnsýslusvæði“

Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða.

Innlent

Mal­bika við Baulu í kvöld

Áætlað er að malbika 1,6 kílómetra langan kafla þjóðvegar 1 við veitingastaðinn Baulu í kvöld, miðvikudagskvöldið 24. ágúst, og annað kvöld, þriðjudagskvöldið 25. ágúst. Áætlað er að framkvæmdir standi frá kl 20:00 til 07:00 að morgni bæði kvöldin. Umferðarstýring verður á svæðinu en búast má við umferðartöfum.

Innlent

Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi

Dómsmálaráðherra segir algjört stefnuleysi hafa ríkt um árabil í innflytjendamálum og að stéttskipting hafi í kjölfarið verið flutt inn. Mikilvægt sé að gera bæði kröfur til fólks sem hér sest að og til Íslendinga um móttöku þess fólks.

Innlent

Smá hökt að­eins byrjunin á ein­hverju stór­kost­legu

Skólastjóri Hólabrekkuskóla segir að smá hökt á fyrsta skóladegi hljóti að vera byrjunin á einhverju stórkostlegu í unglingadeild skólans. Á annað hundrað nemendur fóru snemma heim en reiknað er með að öryggisúttekt ljúki í dag. Allir mæta svo í nýtt húsnæði í fyrramálið og hefja námið samkvæmt stundaskrá.

Innlent

Full­viss um að hann myndi ekki lifa þetta af

Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur.

Innlent

Hvetur al­menning til að vara sig á gerviaðgöngum

Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi.

Innlent

Hnífamaður reyndist vera að tína blóm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók erlendan ferðamann í gærkvöldi eða nótt eftir að tilkynning barst um einstakling með hníf. Viðkomandi var hins vegar látinn laus eftir að í ljós kom að hann hafði verið að nota hnífinn til skera blóm og tína.

Innlent

Tals­verð úr­koma í vændum í dag

Von er á talsverðri úrkomu suðaustan- og vestanlands í dag, vegna lægðar sem fer norður yfir landið. Rigningarbakkinn fer yfir landið og fylgir honum strekkings suðaustanátt. Á vestanverður landinu verður norðan og norðaustanátt.

Innlent

„Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir í­búana í hverfinu“

Ein fárra leiða inn og út úr íbúðahverfinu á Kársnesi hefur verið lokuð vegna framkvæmda síðan í júlí en áætlað er að þeim ljúki í síðasta lagi í október og þá sé unnt að opna fyrir umferð út úr hverfinu á ný. Verið er að leggja nýja stofnlögn til að tryggja íbúum nægt heitt vatn til framtíðar en upplýsingafulltrúi Veitna segir mjög skiljanlegt að íbúum sé farið að finnast þetta heldur tímafrekar framkvæmdir.

Innlent

Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð

Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, segir félagið hafa kallað eftir því að aldursviðmið í vopnalögunum er varðar börn verði uppfærð. Miða ætti við 18 ára í stað tuttugu og að rýmka ætti heimildir fyrir þátttöku barna í skotveiðum. Þórir Ingvarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir vopnalögin alveg skýr. Börn megi ekki meðhöndla skotvopn.

Innlent

Mal­bika Vestur­lands­veg og stýra um­ferð á meðan

Í kvöld, sunnudaginn 23. ágúst, og aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst stendur til að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi, meðal annars yfir Leirvogsá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á þeim stendur en henni verður stýrt í gegnum vinnusvæði.

Innlent

Tvö út­köll á svipuðum slóðum á há­lendinu með stuttu milli­bili

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að austanverðum Sólheimajökli í kjölfar útkalls vegna manns sem hafði slasast á fæti um tvöleytið í dag, sunnudaginn 23. ágúst. Hann var hífður upp og fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur en skömmu áður höfðu björgunarsveitir sótt annan slasaðan mann á svipuðum slóðum.

Innlent

Til­kynnt um heimilis­of­beldi í Reykja­vík og Hafnar­firði

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um heimilisofbeldi í hverfi 105 Reykjavík og hverfi 220 í Hafnarfirði í morgun eða í dag. Ekki liggur fyrir hvort það hafi áður verið kallað eftir aðstoð lögreglu á sömu heimili né hafa komið fram frekari upplýsingar um áverka og málsatvik.

Innlent

Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með Ásgeiri Jónssyni skömmu fyrir vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í síðustu viku. Aðstoðarmaður Þorgerðar segir vaxtaákvörðunina ekki hafa verið rædda á fundi þeirra.

Innlent

Gagn­rýnir við­bragð lög­reglu eftir á­hlaup ung­menna

Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað.

Innlent