Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur í Bónus-deild karla í körfubolta undanfarin ár, lætur ekki ná í sig þessa dagana. Óljóst er hvort hann komi til með að spila fyrir liðið í vetur líkt og til stóð. Körfubolti 7.10.2026 14:33
Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Þrátt fyrir að Jeremy Pargo hafi ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum áfram, eftir eina „ótrúlegustu frammistöðu sem sést hefur á íþróttavelli á Íslandi“, er Íslandsmeisturunum aðeins spáð 5. sæti í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Keflavík, Valur og Njarðvík verða einnig í neðri hluta úrslitakeppnissætanna samkvæmt sérfræðingunum. Körfubolti 7.10.2026 12:00
Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Bónus-deild kvenna á sviðið í kvöld á sportrásum Sýnar en þar eru tveir leikir á dagskrá og svo uppgjörsþátturinn Körfuboltakvöld. Körfubolti 7.10.2026 06:28
Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Körfubolti 6.10.2026 18:31
Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna KR-ingar eru meistarar meistaranna í körfubolta 2026 eftir nokkuð þægilegan sigur á Grindvíkingum í Grindavík. Lokatölur 106-79. Körfubolti 3.10.2026 18:45
Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Álftnesingar hafa verið öflugir á leikmannamarkaðnum í sumar og sömuleiðis fengið Baldur Þór Ragnarsson sem þjálfara. Þeir hlutu nokkuð afgerandi kosningu sem líklegasta liðið til að ná efsta sæti Bónus-deildarinnar í körfubolta í vetur. Körfubolti 2.10.2026 12:37
Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Valur fékk Íslandsmeistara Njarðvík í heimsókn í N1 höllina í kvöld þegar síðustu leikir fyrstu umferðar Bónus deild kvenna fóru fram. Eftir jafnan leik framan af stigu Valskonur á bensíngjöfina í fjórða leikhluta og fóru að lokum með öruggan og óvæntan þrettán stiga sigur 77-64. Körfubolti 30.9.2026 18:31
Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Haukar tóku á móti Fjölni í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna þar sem Haukar unnu stórsigur 96-65. Nýliðarnir í Fjölni áttu erfiða byrjun og sá liðið aldrei til sólar eftir það. Körfubolti 30.9.2026 21:03
Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Sigurganga Tindastóls heldur áfram í ENBL-deildinni þar sem liðið vann enska liðið Bristol Flyers í á Englandi. Leikurinn endaði með 85-68 sigri Tindastóls og er liðið enn með fullt hús stiga í deildinni. Körfubolti 30.9.2026 20:37
Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur Pálína Gunnlaugsdóttir spáði silfurliði Hauka aðeins sjötta sæti í Bónus-deild kvenna í körfubolta í vetur þegar hún fékk það hlutverk að staðsetja Haukaliðið í upphitunarþætti Körfuboltakvölds. Körfubolti 30.9.2026 15:00
„Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þær eru búnar að missa rosalega mikið,“ segir Helena Sverrisdóttir um lið Vals sem í kvöld byrjar nýja leiktíð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Sérfræðingar Körfuboltakvölds óttast dimman vetur á Hlíðarenda. Körfubolti 30.9.2026 12:46
„Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var sáttur við sóknarleikinn en ósáttur við varnarleikinn þegar lið hans lagði Stjörnuna að velli í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 29.9.2026 22:29
„Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með vinnuframlag leikmanna sinna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Ólafur Jónas segir aftur á móti verk að vinna að fínpússa ákveðna hluti á báðum endum vallarins. Körfubolti 29.9.2026 22:26
Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. Körfubolti 29.9.2026 21:39
Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik KR-ingar báru sigurorð af Stjörnunni þegar liðin áttust við fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 94-87 KR í vil. Körfubolti 29.9.2026 18:31
Grænn Rúnar dró Grindavík Grindavík er spáð góðum árangri á komandi leiktíð í Bónus deild kvenna í körfubolta. Njarðvíkingum er spáð titlinum en Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson spáir Grindavík öðru sætinu. Körfubolti 29.9.2026 16:01
Meiri pressa á sterkara KR-liði KR var til umræðu í upphitunarþætti fyrir tímabilið í Bónus-deild kvenna í körfubolta í gærkvöld. Keppni hefst í deildinni í kvöld. Körfubolti 29.9.2026 12:30
Lebron talaði hreint út Lebron James segist ekki hafa yfirgefið fjölskyldu sína í Los Angeles til þess að falla snemma úr leik í úrslitakeppni NBA deildarinnar með nýja liði sínu Philadelphia 76ers. Hann ætlar sér annan meistaratitil á lokastigi ferilsins. Körfubolti 28.9.2026 23:03
Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tryggvi Snær Hlinason tók sig vel út í gervigreindarmyndbandi spænska félagsins Bilbao Basket sem er greinilega stolt af íslenska miðherjanum sínum. Körfubolti 28.9.2026 12:32
Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Tindastóll er með fullt hús stiga í ENBL deildinni í körfubolta eftir sigur gegn Jonava frá Litáen á útivelli í miklum spennutrylli. Lokatölur 77-71, sex stiga sigur Tindastóls Körfubolti 27.9.2026 15:58
Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Körfuboltatímabilið á Íslandi hófst formlega í kvöld þegar Íslandsmeistarar Njarðvíkur og Bikarmeistarar Keflavíkur kvenna mættust í IceMar höllinni í meistarakeppni KKÍ. Fyrsti titill tímabilsins féll í hendur Njarðvíkur sem hafði betur 83-78. Körfubolti 25.9.2026 18:30
Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Mikil spenna er fyrir Bónus-deild kvenna í ár og hefst tímabilið formlega í kvöld. Þar mætast Íslandsmeistarar Njarðvíkur gegn bikarmeisturum Keflavíkur í keppni um hver er meistari meistaranna. Körfubolti 25.9.2026 12:58
Martin frábær í sigurleik Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin unnu í kvöld Frankfurt, 94-83, í nokkuð opnum körfuboltaleik. Körfubolti 24.9.2026 18:41
Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Tindastóll valtaði í dag yfir Liepaja frá Lettlandi í ENBL-Evrópukeppninni en um var að ræða fyrsta leik liðsins í riðlakeppninni. Körfubolti 23.9.2026 18:08
Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Martin Hermannsson var í liði Alba Berlin þegar liðið tók á móti Chemnitz í fyrsta leik þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Leikurinn var jafn í byrjun en Alba Berlin náði að vinna með frábærum lokaleikhluta 89-82. Körfubolti 18.9.2026 20:06