Spurs úr leik eftir tap í Monaco | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. nóvember 2016 21:45
Tottenham Hotspur er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap fyrir Monaco á útivelli í kvöld. Monaco er komið áfram og búið að vinna riðilinn. Leverkusen, sem gerði 1-1 jafntefli við CSKA Moskvu, fylgir Monaco í 16-liða úrslitin. Monaco var sterkari aðilinn í leik kvöldsins og átti sigurinn skilið. Ef ekki hefði verið fyrir frábæra frammistöðu Hugo Lloris hefði Monaco skorað fleiri mörk. Tottenham fékk úrvalsfæri snemma leiks þegar Son Heung-Min komst einn í gegn en tókst ekki að koma skoti á markið. Á 11. mínútu fékk Monaco vítaspyrnu. Radamel Falcao fór á punktinn en Lloris varði spyrnu hans. Monaco-menn voru áfram sterkari aðilinn en staðan í hálfleik var markalaus. Upphafsmínútur seinni hálfleiks voru ótrúlegar. Djibril Sidibé kom Monaco yfir með skalla eftir fyrirgjöf Benjamins Mendy á 48. mínútu en Harry Kane jafnaði metin úr vítaspyrnu fjórum mínútum síðar. Monaco-menn tóku miðju, geystust í sókn og Thomas Lemar kom heimamönnum yfir á nýjan leik. Aðeins 39 sekúndur liðu á milli marks 2 og 3. Það sem eftir lifði leiks var Monaco nær því að bæta við mörkum en Tottenham að jafna. Og svo fór að Frakkarnir hrósuðu sigri, 2-1.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Sjá meira